|
|
09.02.2008 19:22:13 / baragrand
Ég var á leiðinni til Bury st.Edmunds til Jónu Karenar 7 febr. kl. 16 . Veðrið svona líka flott eða þannig. Fylgdist með á textavarpinu og sá að ekkert flug var staðfest. Hringdi inn í Express um 12 og var mér sagt að það væri verið að funda um þessi mál.Ég var búin að frétta ofan af Leifsstöð að það væri verið að tala um að sameina flugið frá 7.15 um morguninn og seinni vélina sem ég ætti að fara með. Hringdi aftur kl. 13 og þá var sagt að vélin færi ekki fyrr en kl. 20. En ætti að reyna að fljúga morgunvélinn kl. 14 og ég vissi að það væru mjög fáir farþegar skráðir með henni.Ég sagði við hana af hverju mér hefði ekki verið boðið að fara með henni, væri í Kef, og alveg tilbúin.Því miður. Skrýtið ,því að veðrið átti eftir að versna ,var allavega spáð þannig. Ég var tilbúin með allt nema átti eftir að setja tölvuna í handfarangur, klæða mig og GO. Fór að moka tröppurnar á húsinu og á svölunum bakvið. Alltaf með símann í vasanum. Var komin niður í þvottahús að setja í vél þegar Laufey vínkona mín sem vinnur uppi á Leifsstöð hringdi. Anna Vélin fer kl. 13 ,drífðu þig.Ég hringdi í Express og var númer 9 í röðinni.Þá er hringt í gsminn og ,Anna vélin fer kl. 13 , Ég sagði við konuna , heyrði ég er númer eitt á bið hjá ykkur og skelli á. Þá skellir hún á mig haha. Aftur í símann og aftur númer 9,bla bla.Aftur hringir hún í gsminn .Verður að fara upp á stöð núna Ég af stað og Tobba kom í hendingskasti að sækja mig. Sáum varla veginn , það var svo mikill blindbylur, en náðum uppeftir .Bókaði mig inn og rauk upp. Verð að viðurkenna að þá var hjartsláturinn farin að hægja á sér haha. Stressið. Flýtti mér í Fríhöfnina og verslaði smá. Og af stað. Ekki var komin staðfesting og nýjustu fréttir voru kl. 16. Reyndi að fara á netið en komst aldrei inn á þetta blessaðu þráðlausa net sem flugstöðin er svo stolt af . Ef vínkona mín hefði ekki hringt og eins var Eva dugleg að hjálpa mér .Hringja í mig og láta mig vita stöðu mála. Ég hefði verið heima og bara að þrífa haha. Fólk var þarna búið að bíða síðan um 5 um morguninn, flott. Og orðið soldið djúserí á liðinu, fúlt .Þegar fólk er að fara í helgarferð þegar er svona seinkun, ( en aldrei hægt að treysta á veðrið og engum hægt að kenna um. ) Heyrði á fólki að það var svekkt á upplýsingunum sem það var að fá og voru margs konar.Kl. 21 átti að reyna næst og fólki boðið upp á samlokur og kók. Ég hitti tvo menn þarna og fór að spjalla við þá. Annars var breti sem varð að komast heim ,átti pantað flug til Alicante á laugardagsmorgninum með alla fjölskylduna. Hinn var íslendingur sem býr í Englandi.Sá fékk nú að sjá Ísland í sínum versta ham.haha. Það er að segja bretinn haha. Næst átti að fljúga kl. 21 , Jæja , svo ég rölti með þeim inn á nýja barinn og við fengum okkur bara bjór og sátum og spjölluðum. Þeir pöntuðu sér herb. til öryggis á hótel Keflavík ,því útlitið var slæmt. Næstu fréttir voru kl. 23 jesus krist sko. Svo um kl. 21 var okkur sagt að öllu flugi væri frestað og fólk gæti fengið endurgreidda miðana eða bókað sig áfram og buðu þeir miða ´fyrir okkur öll á alla áfangastaðu express í skaðabætur. Íslendingurinn sem sat hjá mér hljóp af stað með miðana og passana okkar og fengum við 3 síðustu sætin með morgunvélinni. Hjúkk. Tókum töskurnar og að fórum að færibandinu .Var nú alveg viss að rollan sem ég var með var steindauð. Búin að vera á færibandinu allan daginn og ef það hefur verið lífsmark með henni þegar ég pakkaði henni þá er nokkuð öruggt að hún hefur drepist af snúningnum á færibandinu . Jæja , fórum í tollinn og hittum rosalega almennilegan tollara sem tók allan mat hjá okkur og setti í poka og í kæli fyrir okkur. Pöntuðum taxa og fengum stóran bíl. Ég sagði við mennina að það tæki því ekki að fara á hótel og borga f. herb. f. nokkra tíma. Sagði þeim að koma bara heim til mín og gætu lagt sig þar. Hittum tvær ungar stelpur sem voru að koma úr bænum og voru búnar að panta herb. á Hótel Kef og búnar að borga með korti. Æi, hefðu getað komið líka með okkur. Komum heim og ég fór með þá á Paddýs í einn bjór. Kiktum á Trix og það var ekki neinn þar svo við löbbum heim til mín. Ég þorði ekki að leggja mig, var svo hrædd um að vakna ekki og verð svo mygluð eftir nokkra tíma svefn. Svo ég bara dúllaði mér heima og var á tölvunni á netinu. Vakti þá og við upp eftir aftu. Sóttum matinn og í chekkið. Ég setti töskuna mína á bandið Og heim aftur. inn.Þeir voru búnir að vera að spá að fara með British ef allt klikkaði Ég náði að leggja mig í 2 tíma : Kiktum á netið og á textavarpið að ekki staðfest um vélina kl.12 Voru heillengi að bóka og það var 58 þús. f. þá báða út. Svo var rokið í taxa og þegar ég horfi eftir bílnum ,hringir Vínkona mín og sagði mér að drífa mér ,Vélin færi kl. 13 Rauk af stað , fékk bíl og inn Hí stöð .Hitti þá um leið og ég kom inn. Þeirra vél átti að fara kl. 13 og mín 13.15 Og það versta var að bíllinn þeirra var á Stansted.Vélarnar frá þeim lendir á Gatwick.Fór út að deskinu og þar var komin mikil röð rétt eftir að ég mætti. Svo var beðið í klukkutíma .Komust í vélina kl. 14 og af stað.Jibbi , og ferðafélagi minn var nú gamall kunningi minn hann Heiðar Jóns og það var kjaftað alla leiðina og tíminn enga stund að líða. Vorum einmitt að hlæja að því að hann vinnur Hjá Express og ég þurfti ekki að borga fyrir vatnið mitt hahah. hann sagði , þau halda að þú sért að þú sért dateið mitt haha.það var mikið klappað þegar við lentum , jibbí. Fórum í gegn og ég beið eftir töskunni minni og ætlaði að hitta hann frammi. Jóna var komin og ég að leita að töskunni minni. Og það var ekki nein taska og ég skyldi ekkert í þessu. Beið og beið. Allar töskurnar komnar , shit. Varð að gefa skýrslu um töskuna. ANDSK. Varð að fara frá vellinum með eina tösku sem var handfarangur. Grát , Grát . Jóna hringdi í stöðvarstjórann hjá Express og hún leitaði og var með öll númer hjá okkur.Leiðinlegt, allur maturinn hennar Jónu og við ætluðum soleiðis að elda okkur læri. UMMM Hringdum heim í tapað fundið og engin taska eftir . Ekki fóru nú margar vélar þennan dag. Ein til Köben allavega.Taskan er Hvar ??????Fórum í matalan og verslaði nærföt,náttföt,fullt á Antoníu.Fann leðurjakka á 7 pund á mig. Sparijakka ,svartan rosalega flottan á 18 pund, gallabuxur á 10 pund og svartar sparibuxur á 10 pund. Íþróttabuxur og boli.Verslaði helling f. 170 pund. Alveg snillingur. Núna vantar mig bara sparikjól og flott stígvél. Fötin sem ég ætlaði að vera í brúðkaupinu eru öll í töskunni. Er svo svekkt.En þetta skýrist vonandi sem fyrst. Jæja eigið gott kvöld, við ætlum að hafa það rólegt og gott. Búnar að kaupa okkur osta og erum að fara að elda okkur kjúkling. Sjáumst , ps.ps. Ef þið viljið skemmta ykkur yfir óförum annara kikiði á vin minn hann Árna Árna hahah. var í hláturskasti hérna seint í gærkvöldi,grenjaði úr hlátri. www.arniarna.bloggar.is.Hann er alveg milljón
»
31.01.2008 19:17:26 / baragrand
Var búin að blogga helling en það eyðist alllt úr hjá mér .Er að verða vitlaus á þessu . Er með glænýja tölvu og verð að fara með hana aftur þangað sem ég keypti hana, er ekki alveg að skilja þetta helv. drasl. Eru ekki allir hressir í skítaveðrinu ? Skemmtilegt búið að vera , þetta tekur á líkama og sál þessi kuldi. Endilega skrifið smá í gestó og ég blogga mjög fljótlega , Sælar
»
14.12.2007 14:21:05 / baragrand
Hæ allir Fann loksins út úr þessu með lykilorðið . Alveg komin með þörf á að skrifa smá og losa um pirring og fleira. Blogga MJÖG fljótlega Skil ekki að það séu ennheimsóknir á síðuna , ekki bloggað síðan í júlí , smart. Jæja kroppar , farið varlega í vonda veðrinu, Hey er einhver til í að bjóða mér til einhvern lands sem er SÓL , hahah. Kveðja í bili Anna Helga
»
04.07.2007 23:29:11 / baragrand
Langar að benda á síðu hjá Ásgeir bróðir mínu , farið inn á
rottweiler.net
og á almennt spjall og undir Tara.
Þar er hann með www.blog.central.is/firedog
En ég kemst ekki beint inn á blog. hjá honum , varð að fara
þessa leið.
þeir eru æði og þvílikar dúllur.
Enda frænka mín hún Tara algjör skvísa. haha.
A llt fínt að frétta hérna úr kotinu, búið að vera pínu
einmanalegt, en hún Antonía er búin að vera já pabba sínum í
nokkrar nætur em við Ægir ein heima. Krakkarnir að fá kanínur. Uff.
EInn loðinn strák sem við skýrðum Loðmund og stelpu sem heitir víst
núna Lína. Fór með þau í kvöld og eru bæði núna í kanínunum , eða
þannig .
Búið að vera að sýna öllum nýju dýrin, Við fórum í dag eftir
námskeiðið og róló í Sólbrekkuskóg við Jóna Karen með Kids Sátum á
teppi og voða nice. Fyrsta skipti sem ég fer þarna og þetta er fínt
svæði fyrir krakkana að leika sér. Annars var maður hálf dasaður
eftir daginn. EKkert búið að vera smá gott veður undanfarið.
Langar að koma einu áleiðis sem ég hef miklar áhyggjur af.
Það er þessi andskotans hraðakstur hérna á götum bæjarins. Ætlar
fólk aldrei að læra . Það er bara kappaskstur í gangi stundum . Svo
er fullt af litlum krökkum úti að hjóla og ég býð eftir stórslysi
einn daginn. Annars er ég nú oft að spá í þegar ég sé krakka frá 3
ára aldri alein úti að hjóla á götunum og að fara ein yfir gatnamót
hvað sé eiginlega í gangi heima hjá þeim. Þetta er allt of ungt til
að hleypa þeim út aleinum að hjóla. Er ekki alveg að fatta þetta
.
Það er búið að plana sumarbústaðaferð eða útilegu um helgina, og
það er búist við rigningu . Jæja ,sælan að verða búin . En bara að
vera bjartsýn og vona að það verði glampandi sól svo að ég fái nú
örugglega fleiri freknur, haha.
Bið að heilsa í bili, allir að fara varlega .
»
11.06.2007 11:52:59 / baragrand
Já það er komin tími á smá blogg frá mér. Maður er alveg dottinn
inn í myspaceheiminn haha,
Það er allt fínt að frétta hjá mér og mínum, Krakkarnir komnir í
frí . Þau fóru í Hrísey m helgina með pabba sínum og er búið að
vera voða fínt hjá þeim þar.Búið að vera gott veður fyrir norðan.
Talandi um veðrið, ætlaði varla að trúa mínum eigin augum í gær
yfir veðrinu hérna. sól og heitt bara.´Eva sótti mig og við kíktum
á Jónu kareni, hún var að koma frá Englandi, vel heppnaðri för,. Æi
, hún var svo sæt að gefa okkur loðna bleika inniskó, ferlega djúsí
skór. Þórhalla bættist í kjaftaklúbbinn rétt eftir að við komum og
rifjað var upp kvöldið áður haha.
Við fórum á Thai að borða og ég er ekki að djóka , við borðuðum
úti . Kíktum á rúntinn og Jóna Karen kom svo og hitti okkur, Fínt
kvöld. Komin heim um 23 og var eitthvað drulluþreytt bara .
Antonía Mist byrjaði á söngnámskeiði hjá Bríeti Sunnu í síðustu
viku og fannst voða gaman, Hún n´r vel til krakkanna, Var nú feimin
þegar við fórum og bað mig að vera með sér, en eftir tímann sagði
hún við mig, Af hverju varst þú þarna mamma. Svo ég læt hana fara
eina næst. Er að spá í einhver námskeið hérna fyrir þau, langar að
koma þeim í sund en þá verður Ægir í örðum hóp en hún og það er
ekki að virka með hann. Er svo vatnshrlæddur og hefði verið betra
að hafa þau saman. Þarf að finna eitthvað út úr þessu . Verða
hundleið að hanga svona í fríi .
Jæja best að fara að taka til og brjóta saman þvott .
Annars þarf ég að reyna að klára að setja saman kommóðu sem ég
keypti og er búin að setja saman skúffurnar og svo gafst ég upp.
kann ekki að setja einhverjar brautir á skúffurnar. Djöf... er
þetta leiðinlegt . ARg.
EIGIÐ GÓÐAN MÁNUDAG
»
21.05.2007 11:35:56 / baragrand
Það er ekki að ganga neitt með þessu síða mína hérna . Kannski
að maður ( kona ) reyni að fara að taka sig saman í andlitinu og
bulli eitthvað hérna áfram .
Það er bara svo gaman á myspace að maður gleymir blogginu
alveg.
Það er allt fínt að frétta hjá mér hérna á Hringbrautinni.
Krakkarnir í stuði eins og alltaf og mamman alveg að gráhærð á
rifrildum systkyninna. Meira hvað systkynum getur komið ílla
saman,.
'Eg skellti mér í bæinn á laugardaginn með Evu og Þórhöllu og
settum við krakkana í Ævintýralandið. Þeim fannst ekkert smá gaman
þar. VIð náðum að rölta aðeins um pleisið.
Sá og hitti alveg ótrúlega marga sem ég hef ekki hitt lengi.
Kringlan er greinilega aðal samkonustaðurinn í dag.
Fór heim með krakkana og pabbi þeirra sótti þá kl. 19. 'eg var
að fara í afmæli hjá bræðrum mínum úti á Álftanesi,
Þríburasystkyni mín verða fertug núna 22 mai,. Bræður mínir búa
í sömu götu og voru með sitthvora veisluna svo það var bara rölt á
milli. Fór á bílnum og var ekki alveg í stuði að gista í bænum og
fara á djamm. Ekki það að sé ekki komin tíma á djamm í
Reykjavíkinni, en ekki alveg þessa helgi., Svo það var bara að vera
edrú á bílnum og koma sérsvo heim. Fékknú smá fiðring á tímabili ,
allir að fara á Sálina á Nasa. Ekki leiðinlegt það. Keyrði heim
um12 leitið og ætlaði að skella mér jamm í Kef, En varsvo eitthvað
löt þegar heim var komið og fór bara að sofa. Rosalega fegin þegar
ég vaknaði morguninn eftir . Svaf vel og bara hress.
Ætluðum í hádeginu ég og Hulda á Thai matsölustaðinn, er alveg
orðin sjúk í þennan mat hjá þeim,Nei,nei,allt lokað og læs. Í
hadeginu á Sunnudegi ,hvað er að .Tókum rúnt í Garðinn og
ákváðum að kikja í Sandgerði áMamma Mía ,Nei , lokað , Stóð samt á
hurðinni að það væri opið á sunnudögum frá 11.20 og klukkan 14 ,
Svo þetta varð bara smá sveitarúntur an matar haha,Enduðum á
Langbest og það var að sjálfsögðu Berbessósan góða með mat.
Kiktum í Hafnirnar til Kristínar Pálínu , kölluð Stína Bingur og
er hún að koma sér fyrir í nýja húsinu sem hún var að kaupa sér ,.
Fínt hús sem hún er að taka í geng þarna ogleist okkur bara vel á
það.,
Skrýtið þegar við komum inn götuna þá fengum við Hulda báðar
svima og ég verk í gangaugað. Hulda sagði við mig,Anna fannstu
eitthvað ? já sagði ég og við litumá hvor aðra ,það er eitthvað
hérna . Spúkí, en fundum hvorugar fyrir neinu þarna inni,Bara góður
andi í húsinu,
Ef einhver vill fá kettling þá er Stína komin með einn sem er
búin að væla fyrir utan húsið hennar og krakkarnir tóku hann inn.
Ferlega sætur fress og vill hún gefa hann,
Bara að hafa samband við mig ef þiðhafið áhuga. Hefði tekið hann
sjálf ef ég væri ekki í blokk.,
EIns gott að Antonía Mist var ekki með mér, þá hefði orðið röfl
og læti, Hana langar svo í kisu eða hund,
Það er ágætt að passa þessi dýr af og til en er ekki að fara að
fá mér dýr aftur,.
Væri til í það ef ég væri með góðan garð og einbýli,
Jæja nóg af röfli hérna núna,
Eigið góðan dag og ég ætla að skella mér í sameignina hérna og
klára
Kveðja
ANna
»
04.05.2007 21:58:53 / baragrand
|
|
|
> sofandi, náði mér í aðra rauðvínsflösku, hitaði
vaxrenning, setti annan
> fótinn upp á klósettið og skellti renningnum í klofið..... og
reif af. Ó MÆ
> GOD!!! Ó JESÚS KRISTUR!!! ÉG SÉ EKKERT, ÉG ER BLIND, ÞVÍLÍKUR
SÁRSAUKI!!! Ég
> var blinduð af sársauka, sló niður hárblásarann og
rauðvínsflöskuna áður en
> ég náði andanum aftur. Ég hélt ég hefði gelt sjálfa mig með
því að rífa af
> mér hálfa píkuna! Ég þakkaði allavega fyrir að miðað við
sársaukann þá gat
> ekki verið eitt stingandi strá eftir.
> >
> >Ég leit á vaxrenninginn. FUCK! FUCK, SHIT, FUCK! Hann.
var. tómur. Ekki eitt
> einasta hár á renningnum.... og ekki neitt vax heldur! HVAR
VAR VAXIÐ??? Ég
> leit hægt niður, hrædd við sjónina sem beið mín..... allt
vaxið af renningnum
> var í klofinu á mér. Ég leit til himins. WHY? Og gjörsamlega
miður tók fótinn
> niður af klósettinu! Mistök! ÞVÍLÍK MISTÖK!
> >Ég gjörsamlega heyrði píkuna og rasskinnarnar límast
saman!
> >
> >Ég gekk um baðherbergisgólfið algjörlega miður mín og
hugsaði hvað til
> bragðs skyldi taka. Hvernig get ég losnað við vaxið. Ég
prófaði að toga það
> af með puttunum. Ekki góð hugmynd. Ég yrði að láta það leysast
upp, bræða það
> á einhvern máta. Hvað bræðir vax? Mér varð litið á
hárblásarann en hvarf
> strax frá þeirri hugmynd þar sem mig langaði ekki til að
útskýra brunasárin á
> brunadeildinni niður á Borgarspítala. Vatn! Vatn bræðir
vax.
> >Ég lét vatn renna í baðið, svo heitt að Saddam Hussein
hefði kosið að nota
> það til að pynda óvini sína, ég aftur á móti dró andann djúpt,
gekkst undir
> pyntingar sjálfviljug og settist í baðkarið.
> >
> >Ég komst að nokkru sem ég hafði ekki vitað áður. Vatn
bræðir ekki vax!
> >Neibb, 60 gráðu heitt vatn bræðir ekki vax, aftur á móti
var ég nú límd föst
> við baðbotninn! Heilinn fór í óverdræv, hvernig gat ég bjargað
mér úr þessari
> klípu? Eftir ýmsar tilraunir sem allar mislukkuðust, náði ég í
Lady rakvélina
> mína og ákvað að skafa vaxið af! Ef ykkur langar til að vita
hvernig það var
> legg ég til að þið rakið ykkur með ársgamalli vel notaðri
rakvél, notið ekki
> vatn né nokkurs konar sápu. Þá komist þið nálægt því!
> >
> >Ég var að reyna að skafa vaxið af þegar ég kom loksins
auga á bjargvættinn
> minn. Hallelújah, Praise the Lord. Það fylgdi nefnilega með í
pakkanum svona
> vax remover. Ég hafði bara ekki tekið eftir því fyrr. Ég
flýtti mér að ná í
> bómull, hella slatta í og nudda yfir vaxið. ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!
Klofið á mér brann!
> Það var eins og ég hefði hellt yfir það bensíni og kveikt í!
En mér var sama
> því helvítis draslið virkaði. Því þoldi ég sársauka sem
yfirgnæfði allan þann
> sársauka sem ég hafði upplifað við fæðingarnar og gerði mig
150% tilbúna í 10
> fæðingar í viðbót.
> >
> >Þegar ég var búin að hreinsa allt vaxið af skoðaði ég
djásnið. Þrátt fyrir
> öll ósköpin hafði ekki. eitt. einasta. hár. horfið! Ekki.
eitt. einasta!!!
> >
> >Þegar maðurinn kom heim var ég búin að víggirða minn
helming af rúminu.....
> >
> > | |
»
20.04.2007 19:44:02 / baragrand
»
17.04.2007 20:03:48 / baragrand
|
1. Kyssa konuna ekki nóg
Góður og langur koss er stór hluti af forleiknum. Ef þú ert að
flýta þér það mikið að þú gleymir að sinna kossahlutanum er líklegt
að þú náir ekki að æsa hana nóg upp.
2. Blása inn í eyrað á
konunni
Það er greinilega einhver gróusaga í gangi um að konur elski að
láta blása í eyrað á sér. Þetta er lygi. Tunga sem sleikir
eyrnasnepilinn blíðlega er aftur á móti allt annað
mál!
3. Eru órakaðir
Við getum alveg viðurkennt að órakaðir menn geta verið sexý á götum
úti. En prófaðu að nudda sandpappír á innanverð lærin eða á hökuna.
Húðin mun sennilega flagna og ekki sérlega
þægilegt.
4. Klemma brjóstin á
konunni
Við skulum fá það á hreint að konubrjóst eru ekki bolludeig sem á
að hnoða, eða melóna sem þarf að þrýsta á til að athuga hvort hún
sé orðin nógu þroskuð til að borða. Karlmenn! Farið gætilega með
brjóstin á okkur og einbeitið ykkur frekar að
geirvörtunum.
5. Bíta í geirvörturnar
Þegar menn sleikja eða sjúga geirvörturnar er það yfirleitt
yndislegt. En þegar varnarlausar geirvörturnar verða að naghring er
það ekki svo yndislegt lengur.
6. Snúa uppá
geirvörturnar
Í guðanna bænum hættið að snúa uppá geirvörturnar á okkur eins og
þið séuð að stilla útvarpið í bílnum. Geirvörturnar okkar eru ekki
takkar.
7. Gleyma ákveðnum
líkamshlutum
Það finnast fleiri líkamshlutar á konum en brjóst og undirstell.
T.d. axlir, háls, hryggur og rass.
8. Hjálpa konunni ekki úr
fötunum
Ekki bara liggja við hliðina á konunni með hendina niðri í
nærbuxunum hennar. Ef að þú virkilega vilt tæla hana, hjálpaðu
henni þá úr fötunum.
9. Eiga ekki smokka
Maðurinn kemur með okkur heim. Og klæðir sig í smokk. Svoleiðis er
það bara...
10. Ráðast á snípinn
Gjörið svo vel að umgangast snípinn með virðingu. Ekki þrýsta, snúa
eða sjúga hann. Reynið frekar að nudda gætilega í kringum
snípinn.
11. Taka pásur
Ef að þið takið pásu þýðir það stopp fyrir konur. Þá þurfa
mennirnir að byrja frá byrjun. Ef að konan er byrjuð að hitna,
haltu þá áfram. Þú getur líka farið þér hægt á meðan þú fullnægir
henni. Það gefur bónus á endanum.
12. Klæða konuna úr fötunum í vitlausri
röð
Engin kona vill líta asnalega út. Og maður lítur líka asnalega út
þegar neðri líkamshlutinn er nakinn en maður er ennþá klæddur í
sokka og peysu/bol.
13. Ráðast á sköpin
Neðri kroppur konunnar er meira en eitt gat. Taktu þér tíma áður en
þú ræðst á það.
14. Nudda of harkalega
Nudd getur alltaf skapað góða stemmingu. En skildu nuddaðferðina
frá nuddaranum þínum eftir heima. Ef að þú gengur of harkalega til
verks getur það dregið úr stemmningunni.
15. Vilja fá konuna of fljótt úr
fötunum
Ekki rífa hana úr fötunum. Það getur vel verið að Michael Douglas
hafi sloppið vel frá því í erótískum spennumyndum sem að hann hefur
leikið í. Taktu því rólega. Hún hefur jú lagt sig fram um að líta
vel út fyrir þig. Hrósaðu henni fyrir fallegu
undirfötin.
16. Fara fyrst úr buxunum
Röðin ætti að vera: bolur, sokkar, og svo buxurnar. Aldrei öfugt!
Það er ekkert eins ósexý og karlmaður sem stendur á hvítu
tennissokkunum með "vininn" hangandi niður fyrir bolinn.
Þetta atriði er ekki hægt að leggja nógu mikla áherslu
á!
17. Flýtir sér of mikið
Gefðu henni tíma, ekki flýta þér eins og þú eigir lífið að leysa.
Hún mun gefa þér merki um þegar hún vill að þú setjir allt á
fullt.
18. Eru of harðhentir í rúminu
Það fær henni til að líða eins og hún sé nýkomin úr tveggja vikna
reiðtúr, án hnakks!
19. Koma of fljótt
Þetta er mjög algengt. Margir karlmenn koma of fljótt, og þess
vegna er gott að hafa B plan um hvernig þú getur fullnægt
henni.
20. Koma of seint
Þetta er nýtt! Þú ert enginn sexgúrú, bara af því að þú getur
haldið út í tvo tíma án þess að "koma". Allt er þreytandi til
lengdar.
21. Spyrja hana hvort að hún hafi
"komið"
Annað hvort tekur þú eftir því hvort að hún hafi fengið
fullnægingu, annars "kom" hún sennilega ekki. Ekki spyrja svona
heimskulega.
22. Allt of gætileg
munnmök
Þú ert ekki lítill kettlingur sem að lepur mjólkina í þig. Notaðu
tunguna! Rúllaðu, víbraðu og gerðu bylgjur með tungunni á snípnum á
henni.
23. Þrýsta höfði konunnar niður við
munnmök
Nei konum líkar alls ekki að láta þrýsta höfðinu á sér niður að
getnaðarlim mannsins. Já, þetta er gert í klámmyndunum og nei þetta
"fílum" við alls ekki í raunveruleikanum.
24. "Koma" í munn
konunnar
Sæði er á bragðið eins og saltvatn, blandað með eggjahvítu. Það eru
ekki allar konur sem að líkar þetta bragð. Segðu til svo að hún nái
að forða sér áður en þú "færð það" upp í
hana.
25. Hreyfa sig órólega
Þegar hún "tottar" hann á þér, liggðu kyrr. Hún mun sjá um allar
nauðsynlegar hreyfingar.
26. Líkja eftir klámmynd
Klámmyndir eru skemmtun en ekki námskeið í kynlífi. Konur eru í
raunveruleikanum ekki eins og þær sem að leika í þessum
myndum. Þú þarft ekki að glenna lappirnar á henni svakalega
út. Það þarf nefnilega ekki að vera pláss fyrir heilt tökulið í
klofinu á henni.
27. Láta konuna vinna alla
vinnuna
Að láta hana sitja ofan á er mjög gott. En ekki í marga klukkutíma.
Skiptist á að gera gott við hvort annað, og breytið um
stellingar.
28. Spyrja konuna EKKI á undan hvort að hún vilji stunda
endaþarmsmök
Ein af þessum slæmu! Ef að þig langar til að stunda endaþarmsmök
spurðu hana þá fyrst. Það getur vel verið að hún segi já. Þú mátt
ekki bara gera ráð fyrir að hún vilji það. Og að segja að þú hafir
óvart villst í vitlaust gat, er bara út í hött að
segja!
29. Taka einkamyndir
Þegar þú spyrð: má ég taka nektarmyndir af þér? Heyrir hún þig
segja: sem ég get sýnt vinum mínum eða setja þær á internetið.
Láttu hana fá myndirnar og svo getið þið kíkt á þær
saman.
30. Eru of
hugmyndasnauðir
Þessar sömu tvær stellingar geta orðið leiðinlegar. Reyndu eitthvað
nýtt!
31. Eru oft tæknilegir
Kama Sutra, tantrasex o.s.frv. Ef að hún vill stunda jóga hefði hún
sennilega farið á námskeið.
32. Gefa konunni sogblett
Ertu 12 ára gamall? Allir sem svara þessari spurningu neitandi
hætta að gefa sogbletti á stundinni!
33. Tala "dirty" í rúminu
Sumum líkar að láta tala "dirty" við sig í rúminu, öðrum líkar það
ekki. Spurðu hana hvort að hún "fíli" það.
34. Gefa skipanir
Það er hægt að gera á margan hátt. Hún er hvorki hundur né
hermaður...
35. Halda að allt sé yfirstaðið þegar hann er búinn að
"koma"
Sýningunni er ekki lokið fyrr er allir eru fullnægðir. Það er
ekkert verra en menn, sem halda að samræðinu sé lokið, bara af því
að þeir eru fullnægðir.
36. Þrýsta öllu lofti út úr
henni
Mundu að það eru miklar líkur á því að þú sért mun þyngri en hún.
Ef þú liggur lengi ofan á henni getur andlitsliturinn hennar orðið
bláleitur.
37. Þakka fyrir sig eftir
kynlíf
Hún stundar kynlíf af því að henni langar til þess ekki til að
þjónusta þig!
Vonandi hafi þið lært eitthvað af þessu!
;o)
|
»
17.04.2007 13:45:28 / baragrand
Þetta er nú búin að vera meiri ritstíflan í gangi hérna.
Svo er nú skemmtilegra á Myspacinu.
Langar að athuga hvort að einhver kiki hérna inn lengur haha,
veit einhver um link á netinu sem hægt er að skpta á íbúðum og
bílun erlendis.
Veit að fólk hefur verið að þessu í gegnum árin ,en vantar betri
upplýsingar um þetta
Þætti vænt um ef þið hefður upplýsngar handa mér. Er að spá í
Danmörku , Spáin, Portugal eða einhvern fínan stað í Evrópu
Annars er allt fínt að frétta hjá mér og krökkunum, Páskafríið
nýbúið og svo er sumardagurinn fyrsti að renna upp .Frí hjá ANtoníu
á föstudaginn , endalaus frí hjá krökkunum.
Er ekki enn búin að koma mér alveg fyrir ,hvað er að . Eftri að
setja ljos í stofuna . Og svo er ég með eitthvað nett ógeð þessa
dagana á húsgögnunum mínum og langar að skipta öllu út barasta.
Kikti í IKEA í gær og margt þar sem mig langar
í .
Gleðilegt sumar allir nær og fjær
»
25.03.2007 17:21:35 / baragrand
Hey allir saman
Hef tad svaka fint herna a canary.
KOm mer vel a ovart , var buin ad imynda mer tetta allt
odruvis,
Erum a frekar gomlu hoteli Bronzemar ,en flott stadsetning og
stutt a goda matsolustadi
Erum bunar af fara a eitt gott skrall herna a midvikudaginn og
tad var mikid fjor.
Keypti mer flotta myndavel, en er ekki buin a d vera duglag d
smella,
Aetlum ad taka bilaleigubil einn dag herna med 2 monnum sem vid
tekkjum herna og annar er buin ad fara um allt herna. Gaman ad fara
ad skoda..Svo er HM i Palmas og eg bid spennt eftir ad komast
tangad,
Bid ad heilsa ollum og hafid tad gott i SKItavedrinu HEIMA
HAHAH
BLESSSSSS
»
13.03.2007 23:27:25 / baragrand
Já það er ekki hægt að segja að maður sé ekki meðlimur í
lukkufélaginu gamla góða.
Var á á leið á ársfund hjá foreldrafélagi Vesturbergs og á leið
að húsinu var ég að tala í símann og lá við að ég ruddi einhverjum
vegatálma Í burtu með einhverri mjaðmasveiflu , eins og mér er
einni lagið. Allt í einu sökk ég niður í steypu og öskraði alveg .
Jesus , var ekki verið að steypa einn fermeter á gangstéttinni og
ég var ekki að taka eftir. Smart, soð þarna öskrandi og hlæjandi og
Tobba og Helena vor að labba inn í húsið. Heyrði hláturinn í þeim ,
hún steig í steypuna og ég í kasti. Tobba sagði við Helenu, hún
mýgur í sig núna úr hlátri haha.
Nei, nei , ég hélt nú alveg þvagi haha. Var samt voða fegin
þegar ég kom inn að heyra að tvær fóstrur hefðu líka stigið ofaní
steypupyttinn.
Skoðaðu þetta nú betur á leiðinni út og þar var vel af
rigningunni í sporunum okkar .Var að spá að merkjavið mín en hætti
svo við. Svo það er kominn minnisvarði um mig á
Vesturbrautinni.
OG GERI AÐRIR BETUR
»
05.03.2007 18:51:50 / baragrand
Nokkrar staðreyndir um kossa...!!!
Kossar eru góðir fyrir heilsuna. Við innilegan koss eykst
framleiðsla líkamans á kotisól, sem er hormón sem eykur virkni
ofnæmiskerfisins.
Kossar styrkja tilfinningasambönd. Rómantískur koss eykur líka
framleiðslu á oxýtósíni, sem margar konur þekkja sem hormónið sem
veldur fæðingarhríðum. En oxýtósín eykur einnig tilfinningu fyrir
nánd og gerir mann rómantískari.
Kossar eru góðir fyrir tannheilsuna. Munnvatnsframleiðslan eykst
við kossa og hjálpar til við að vernda og hreinsa tennurnar.
Kossar valda gleðivímu. Góður koss hleypur upp framleiðslu heilans
á náttúrulegu dópamíni, adrenalíni og endorfíni en það eru örvandi
efni sem valda ánægjutilfinningu.
Kossar gera svipað gagn og hugleiðsla. Rólegur og langur koss slær
á streytu.
»
28.02.2007 19:29:41 / baragrand
Halló , halló !
Er búin að vera á spaninu í dag, útrétta og fleira. Veit ekki
hvað ég var næstum búin að lenda í mörgun árekstrum. Það var
flautað á gatnamótum á mig og tveir bílar að koma úr sitthvorri
áttinni. Ein næstum búin að beygja inn í hiliðina á mér á
Hafnargötunni. Hún sá ekki rassgat sú haha. Svo ákvað ein í eldri
kantinum að skella sér í apótekið að sækja glákumeðalið og negldi
niður fyrir framan Lyf og Heilsu og svo var farið inn í stæðið og
svo hélt ég að hún kæmi aftur út á götuna .Nei,nei ,gamlan að rétta
bílinn af og næstum komin á mig aftur. Dreif mig bara heim í kotið.
Ekki að taka fleiri sjénsa. Annað hvort voru allir fullir , eða ég
full . Annars er sólin svo lágt á lofti , finnst nú líklegast að
það sé skýringin á þessu öllu . Ég hefði verið í vandræðum ef ég
hefði ekki verið með sólgleraugun mín.
Hún María Baldursdóttir er sextug í dag . Hún og Rúnar giftu sig
í dag kl. 17 í Keflavíkurkirkju. Komin tími til eftir öll þessi ár
þeirra saman. Ég fór upp í Kaffitár og ætlaði að kaupa handa henni
bolla sem hún er að safna sér. Ekki var nú úrvalið mikið. Endaði
með að ég keypti kaffi , síróp , súkkulaði , candís ofl. Fór með
pakkann til Tobbu , en veislan er þar og þegar ég var að skrifa á
kortið til þeirra kom Rúnar .Tobba flýtti sér að henda pakkanum inn
í skáp og ég kortinu í töskuna. Allt orðið rosalega flott fínt á
Smáratúninu og hún var að byrja að undirbúa sig í herlegheitin. Ég
var að koma Kirkjuveginn um fimmleytið þá sá ég ljósmyndara standa
úti í skítakulda, veit ekki hvort að hann var búinn að taka myndir
eða var að bíða . Björgvin Halldórs var fenginn í kirkjuna af sonum
þeirra og var það atriði leyndarmál. Brúðhjónin vissu ekkert af því
að hann mundi syngja fyrir þau. Sat með Stínu á Kaffi Duus um
fjögurleytið og þá var hann að fá sér kaffi . Hrafnihildur sagði
líka , það eru alltaf einhverjir frægir hérna. haha.
Óli Geir hringdi í mig í fyrradag og bað mig að redda smokkum
fyrir Dirty night sem verður á Trix 10 mars næstkomandi. 'Eg var
búin´að fá gefins helling hjá Durex þegar Polís partýið var hérna
um árið. Hann hjá Halldóri Jónssyni var nú hinn almennilegasti og
sendi mér 500 stykki af smokkum og 500 bréf af sleipiefnum. YES:
ekki málið. Bað hann að senda ekki í kassa samt merktum DUREX, Gæti
ekki farið á pósthúsið hérna að sækja pakkann. Haha. Væri nú saga
til næsta bæjar. Óli spurði hvort að ég hefði sofið hjá gæjanum,
fyrir allt þetta magn. Nei , nei , Það var nóg að tala við
hann í símanum. En ég tók það skýrt að ég tæki 100 stykki
sjálf. Lofa að gefa ykkur öllum líka. EKki málið
Jæja best að fara að halda áfram hérna með gormana litlu, Koma
þeim í háttinn og slaka sér
WELL WELL.
OG KVITTA SVO
»
24.02.2007 19:34:27 / baragrand
Æi , var á leiðinni í bæinn á djamm , en vínkona mín varð veik
svo það verður ekkert úr þeirri ferð. Það koma fleiri kvöld eftir
þetta. Það er allt fínt að frétta hjá mér. Búin að vera slök
seinustu daga . En byrjaði að negla hérna um alla veggi í gær .
Ekki alveg búin að koma mér fyrir . Eftir að setja upp nokkur ljós
og svoleiðis. Er að spá að skella mér aðeins út í kvöld , búið að
bjóða mér í opnun á www.agent.is
milli 10 og 12. Veit ekki hvort ég nenni svo snemma út.
Birna var hjá mér í vikunni og það var ekkert smá hressandi að
fá hana í heimsókn. Er enn að hlægja að vitleysuni í okkur. EKki
veitti af að fá smá hláturköst, búið að vanta það helling .
Svo það er búið að plana hláturskvöld fljótlega. Ætlum
að hittast fult af hressum gellum, og þær eru bara hressar og
geta talað fyrir allan peninginn. haha. Og að sjálfsögðu hlegið
mikið. Það verður á hreinu að ég verð með bossableyju. Birna er í
því að kynna sig þessa daga sem Birna Byrgis frá Breyðuvík.
Já við vorum að fá góða hugmynd, hvernig væri að breyta þessu
í hvíldarheimili fyrir þreyttar húsmæður. Mála fangaklefann bleikan
og hafa þetta smá huggó. Væri flott fyrir svona tryppi eins og
okkur vínkonurnar , kæmust ekki spönn frá rassi , innilokaðar í
eyðibýli. Þaðer samt á hreinu að við gætum eitthvað brallað.
Já meðan ég mann, hana Birnu vantar góðan mann. Já góðan mann.
Hvað er að . Sagði líka við hana, þú fílar ekkert góða menn. VIlt
svona röff töffara sem . Einmitt týpan með bankastarfsmanninum í
gráu jakkafötunum . Hún væri fín í bankaboðum og svona heldri
samkomum haha. Strákar þið getið fengið númerið hjá henni hjá mér.
haha.
Sit hérna ein eins og er og er að fá mér bjór og hlusta á góðan
disk sem ég keypti í Portugal og er alveg að detta meira í
sólargírinn . Er búin að vera frekar slæm seinustu daga. Langar svo
í sólina. SÓL , SÓL SKÍN Á MIG. Nei, nei , búin að klína á mig
brúnkukremi í staðinn.Læt það duga í bili . Bæ love
Jæja kroppar góða helgi
»
Síður: 1 2 3 ... 19
|
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 3 mars
Dagsetning
10. febrúar 2012
|